Krakkar mínir komið þið sæl! Já, ég er búinn að vera mjööög latur við að blogga, enda nóg annað að gera við að skemmta mér hérna úti!
Var að fljúga í dag og er búinn að fljúga mína 30 tíma hérna úti.
Fór í gær að skjóta aftur með strákunum; Óliver, Gumma, Palla og T2. Mjög gaman. Ég leigði mér aftur Glock 17 9 mm. og verð að segja að mér hefur farið talsvert fram í skotfiminni þó svo ég hafi nú ekkert æft mig!

Allavega hefði pappakallinn ekki átt mikla lífsmöguleika hefði hann eitthvað verið að hóta mér með sínu pappafési!
Á sunnudaginn fórum við svo í grillveislu til Gumma og Palla, en þeir eru með einbýlishús á leigu ekki svo langt frá þar sem ég og Ólíver búum. Það var alveg meiriháttar. Geggjað veður og góður matur. Eftir að Ólíver, með smá aðstoð frá hinum, hafði stútað heilli rauðvínsflösku og nokkrum köldum með var ákveðið að halda heim á leið aftur og koma sér í rúmið þar sem planið var að fljúga eitthvað daginn eftir. Það þurfti nú ekki mikinn heimspeking til að sjá það að Ólíver kallinn var ekki flughæfur daginn eftir og því nýtti hann daginn við laugina á meðan ég fór að fljúga smá...