Það sem ég er að raula...

- Do something -
.:: Forsíða
.:: Eldri skrif
.:: Myndasafn

- Bloggarar -
.:: Hjalti
.:: Rut
.:: Rúnar
.:: Heiðar
.:: Marta
.:: Brynja
.:: Raggi
.:: Daggrós & Laufey
.:: Óli Krull

- Vídjó -
.:: Rúnar í kúlu!
.::

- Heyrir þú í mér? -
Flugturninn í Chandler

Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/show_news.php on line 16

Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/show_news.php on line 36

Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 23

Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 23

Warning: date(): It is not safe to rely on the system's timezone settings. You are *required* to use the date.timezone setting or the date_default_timezone_set() function. In case you used any of those methods and you are still getting this warning, you most likely misspelled the timezone identifier. We selected the timezone 'UTC' for now, but please set date.timezone to select your timezone. in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 282
: 09.10.2005
Frí í dag
Já, við ákváðum bara að taka okkur frí í dag. Annar dagurinn sem við tökum okkur í frí. Fórum í gær að fljúga og það var alltaf sama sagan, alltaf einhver vandræði. Við Rúnar skelltum okkur af stað og ætluðum að fara aðeins vestur fyrir Phoenix og fljúga í 3 klukkutíma. Við héldum af stað og allt var eins og það átti að vera. Þegar við nálguðumst eina herstöðina hérna nálægt, flugu fjórar F-16 þotur fyrir framan nefið á okkur! Þvílíkt flott.

Við flugum hring frá þessari herstöð, upp að þjóðvegi sem er þar nokkuð langt frá, til baka að einum bænum rétt hjá Phoenix og svo aftur að þessari herstöð og til baka til Chandler. Allt flugið vorum við Rúnar að spjalla saman á talstöðvarrás sem er ætluð fyrir spjall. Þegar við vorum að koma aftur að herstöðinni hætti ég að heyra í Rúnari! wassat Ég kallaði og kallaði en aldrei svaraði Rúnar.

Þegar ég beygði í átt að Chandler svipaðist ég um eftir honum en sá hann hvergi. Ég kallaði aftur og kallaði, en fékk aldrei neitt svar. Frekar óþægileg tilfinning. Ég heyrði í öllum sem voru að tala saman á rásinni, en aldrei heyrði ég í Rúnari, þannig að talstöðin mín var pottþétt í lagi. Ég hélt áfram í átt að Chandler. Þegar ég var kominn í kallfæri við skólann Tailwind, kallaði ég í þá og lét þá vita að ég væri búinn að týna Rúnari og hefði árangurslaust kallað en aldrei fengið svar. Þeir ætluðu að hringja í turninn til að athuga hvort þeir sæju einhverja flugvél sem væri að gefa merki frá sér um að hún væri talstöðvarlaus. Ég tók eina snertilendingu og snéri við til baka til að reyna að sjá hvort ég sæi ekki Rúnar einhversstaðar á leiðinni.

Í sömu andrá hringdi Rúnar kallinn í Tailwind og talaði við þá og sagði þeim að hann talstöðin hjá honum væri biluð. Tom hringdi í turninn og tilkynnti þeim það að flugvélin væri á leiðinni inn og gæti ekki talað við turninn í gegn um talstöðina en hann gæti hinsvegar heyrt það sem þeir sögðu. Turninn gaf Rúnari heimild til lendingar og svo heimilan akstur í stæði. Þvílíkur léttir.

Við hittumst á vellinum og spjölluðum öll saman í smá stund en þá var ákveðið að skella sér í loftið aftur. Ætluðum að taka klukkutíma í viðbót. En það var eins og við manninn mælt, upp komu vandræði. Þegar við vorum búin að vera í loftinu í hálftíma heyrðum við alltíeinu að Rúnar var í einhverjum vandræðum og var að biðja um að lenda, en ekki snertilendingu eins og við. Þegar við hittum á hann aftur kom í ljós að rafkerfið í vélinni var eitthvað að klikka, þannig að kallinn ákvað bara að hætta. laughing

Já, þetta getur stundum verið erfitt! Þess vegna ákváðum við bara að taka því rólega í dag. Vöknuðum ekki fyrr en um hádegi, fórum þá í sólbað, skelltum okkur síðan í "down town" Phoenix sem var nú ekkert voðalega merkilegt þar sem við vissum eiginlega ekki hvert við ættum að fara. Við hinsvegar stoppuðum á stað sem nefnist IHOP eða International House of Pancakes og fengum okkur ekta amerískar pönnukökur löðrandi í sírópi og smjöri! laughing Snilld!

Eftir það fórum við svo í þrívíddarbíó! Það var mjög gaman! Geðveikt skrýtið að horfa á bíó svona.

Eftir það erum við svo bara búin að vera að slaka á, fá okkur bjór og bara blogga og glápa á TV.

Sældar líf....

Warning: date(): It is not safe to rely on the system's timezone settings. You are *required* to use the date.timezone setting or the date_default_timezone_set() function. In case you used any of those methods and you are still getting this warning, you most likely misspelled the timezone identifier. We selected the timezone 'UTC' for now, but please set date.timezone to select your timezone. in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 393

Warning: Division by zero in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/functions.inc.php on line 259