Það sem ég er að raula...
- Bloggarar - |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
| .:: |
|
- Vídjó - |
 |
.:: |
 |
.:: |
|
|
- Heyrir þú í mér? - |
Flugturninn í Chandler |
|
|
|
Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/show_news.php on line 16
Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/show_news.php on line 36
Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 23
Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 23
Warning: date(): It is not safe to rely on the system's timezone settings. You are *required* to use the date.timezone setting or the date_default_timezone_set() function. In case you used any of those methods and you are still getting this warning, you most likely misspelled the timezone identifier. We selected the timezone 'UTC' for now, but please set date.timezone to select your timezone. in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 282
Já, ég er nú á lífi, bara búinn að vera á fullu síðan síðast!
Við erum búin að vera að reyna að vakna kl. 05:30 á morgnana til að fara að fljúga, en það gengur misvel.
Fórum í aðra ferð til L.A. á föstudaginn. Algjör snilld. Við ætluðum nú aldeilis að vera viðbúin og koma betur klædd en við gerðum síðast. Við hefðum betur mátt sleppa því! Það var steikjandi hiti!
Við mættum út á flugvöll kl. rúmlega 6 um morguninn, gerðum vélarnar klárar og lögðum af stað kl. 7. Rut og Rúnar fengu bæði Skyhawk SP með sjálfsstýringu, en ég varð að fara á venjulegum Skyhawk og neyddist því til að stýra henni sjálfur alla leiðina, en það var nú ekki svo slæmt. Góð æfing.
Flugið til L.A. tók rúma 3 tíma. Við lentum, fengum bílaleigubíl og fórum down town. Fengum okkur að borða og fórum svo að skoða hina merkilegu Hollywood Boulevard, þar sem allar stjörnurnar eru í gangstéttinni og handa- og fótaför frægafólksins eru. Það var gaman að því að skoða þetta allt.
Fórum síðan að skoða eitt lélegasta vaxmyndasafn sem til er! Fórum svo þaðan yfir á safn heimsmetabókar Guinnes. Það var gaman að því.
Eftir nokkra klukkustunda ráp um Hollywood Boulevard fórum við að leita að hinu fræga Hollywood skilti. Það tók smá rúnt um L.A., en það hófst að lokum.
Eftir um 5 klukkutíma í L.A. héldum við svo heim á leið. Flugum meira að sega fram hjá Hollywood skiltinu og það mjööög nálægt!
Ferðin heim tók um 3 og hálfan klukkutíma vegna þess að við fengum leiðinlegan mótvind á leiðinni. Svo var þvílíkt rok hérna heima og þurftum við að lenda í rosa hliðarvidi. Góð æfing.
Daginn eftir vorum við mjög slöpp. Drulluðumst ekki á fætur fyrr en um kl. 8, flugum ekki nema í rúman klukkutíma. Vorum samt duglegri í dag.
En, jæja, ég er farinn. Erum að fara á Arizona State Fair með Anthony og Eric. |
|
Warning: date(): It is not safe to rely on the system's timezone settings. You are *required* to use the date.timezone setting or the date_default_timezone_set() function. In case you used any of those methods and you are still getting this warning, you most likely misspelled the timezone identifier. We selected the timezone 'UTC' for now, but please set date.timezone to select your timezone. in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/shows.inc.php on line 393
Warning: Division by zero in /home/flugnet/www/blog/kerfi/inc/functions.inc.php on line 259