
Rúnar að æfa sig í hliðarvindslendingum. Var ágætlega hvasst þennan dag. |
Jæja... þá eru Rúnar og Rut flutt út...

Þau eru nú ekki farin langt, bara um 20 mín. akstur á milli, og svo er Óli líka kominn hingað út! Fyrir utan það að þá fæ ég loksins að sofa í almennilegu rúmi! Búinn að sofa á svefnsófa dauðans s.l. mánuð!

Ekki það að hvorki Rúnar né Rut hafi ekki boðið mér að skipta.
Í gær fórum ég, Rut og Rúnar með Anthony, kennara, á þetta State Fair sem er haldið hér á hverju ári. Það var alveg ágætt. Smökkuðum mikið af ógeðslegum, djúpsteiktum mat eins og t.d. djúpsteiktar pylsur, djúpsteiktar STERA karteflusneiðar (alveg huge!). Svo prófaði ég líka karamelluhjúpað epli, Rut fékk sér riiisastóran kalkúnalegg sem var liggur við á stærð við venjulegan heilan kjúkling heima!

Rúnar og Rut fóru svo í nokkur tæki, en ég sleppti því þar sem einhver þurfti að geyma allt dótið þeirra!

Við náðum að plata Rúnar til að fara í svona kúlu sem skýst svona upp í loftið á teygjum og keyptum svo DVD disk með þeirri athöfn!

(Væntanlegt hér!)
Þegar við vorum búin að fara um allt svæðið nokkrum sinnum fórum við að ná í Óla á Sky Harbor. Hann tók sömu leið og ég og var því búinn að vera á flugi í 10 og hálfa klukkustund með nokkrum klukkutímum í bið á milli fluga og var því að vonum orðinn úrvinda af þreytu þegar hann loksins komst heim. Því fórum við bara í háttinn.
Í morgun fórum við svo í Scottsdale, þangað sem Rut og Rúnar eru að flytja en ég ákvað að taka mér frí frá fluginu í dag, s.s. þriðji dagurinn sem ég er í fríi frá því ég kom út. Óli þurfti líka að fara þangað til að ná í bandaríska einkaflugmannsskírteinið sitt þannig að það var bara drifið í því klukkan rétt um 9 í morgun. Rúnar og Rut greyin voru svo skömmuð fyrir að mæta svona seint (kl. 10) og fyrir að vera ekki í búningum! Samt var búið að segja við þau að þau þyrftu ekki að mæta fyrr en um 10...! Greyin.
Eftir hádegi fór svo að rigna þokkalega! Byrjaði á því að við sáum eldingarnar í fjarska. Seinna fórum við svo að sjá mikð sandfok í fjarska. Þegar við vorum svo niðrá velli skall þetta allt yfir í einu! Fyrst eldingarnar, svo rok sem blés öllum sandinum með sér og á tímabili var ekki einusinni hægt að sjá út á flugbrautina frá skólanum! Þegar þetta var búið kom helli demba. Þetta gekk samt allt yfir á rétt um 15 mín.! Samt rigndi alltaf annað slagið í dag og núna í kvöld má enn sjá eldingar hér og þar. Hefði eiginlega ekki getað hitt á betri dag en á frídaginn hjá mér, m.t.t. flugsins.
Fórum svo í bíó í dag á mynd sem heitir Fighter Pilot! Þvílíkir flugnördar!

Eyddum svo rétt tæplega 3 klukkustundum í spilatækjasal og höfðum gaman að!
Svo á að fara að koma Óla af stað í fluginu á morgun, stefnan tekin á Vegas um helgina og hitta á Sigga Valla vin minn og félaga til margra ára, en hann er núna í Flórída að hitta systur sína og kærasta hennar sem er að safna flugtímum þar. Það verður stemning!
Já, svo er ég búinn að setja inn myndir frá Hollywood ferðinni okkar o.fl.
En jæja, ég læt þetta gott heita í bili... og kvittið svo fyrir ykkur þið sem lesið!