Jæja, nú krefst ég þess að þú, lesandi góður, gerir vart við veru þína hér og gerir komment á þessa grein hér, þó ekki nema bara einn punkt.
Annars var fínt í dag. Fór kl. 9 í morgun að fljúga í 3 tíma einn. Fór smá hring sem tekur einmitt tæpa 3 tíma og er vestan við Phoenix. Það var fínt að vera bara einn í sínum eigin heimi að hlusta á tónlist úr iPod, syngja hástöfum með og njóta þess að fljúga. Það er alveg magnað að hlusta á góða tónlist og fljúga... the ultimate high!

Eftir þennan hring minn fór ég og fékk mér að snæða hádegismat á Hangar Café, sem er veitingastaðurinn á flugvellinum í Chandler.
Fór svo loksins að fljúga tveggjahreyfla vélinni seinni partinn. Hún er nú engin glæsikerra, en hún flýgur vel. Alltaf jafn gaman að sitja á flugbrautarendanum og færa bensínsköftin fram og finna kraftinn í þessum flugvélum!
Rut og Rúnar komu með mér í fyrsta flugið og líkaði bara ágætlega held ég. Þau eru annars að fara að fljúga mikið flottari tveggjahreyfla flugvélum í Scottsdale sem heita Seneca V (rómverski tölustafurinn), en þessi sem ég er að fljúga hér er Seneca I og í eldri kantinum!
Við flugum aðeins út fyrir borgina og æfðum hægflug og beygjur og svoleiðis, svona til þess að kynnast flugvélinni aðeins. Svo tókum við tvær lendingar á einum flugvellinum til að æfa þær. Komum svo aftur til baka og lentum í Chandler og fékk ég að skrá á mig 1,8 klukkustundir sem er bara ágætt.
Fer svo aftur á morgun að fljúga "trukknum" eins og hún er kölluð hér! Tek þá væntanlega nokkrar myndir af henni til að sýna ykkur gripinn!

En ég læt þetta nægja í bili og krefst þess að þú látir vita af þér svo ég sé ekki bara að skrifa þetta allt út í loftið!