
Ferðin sem ég fór í dag, Chandler, Albuquerque, Deming, Tuscon og Chandler. Snilldar ferð! |
Þá er þessi þokkalegi dagur að baki! Búinn að fljúga rúmlega 6 tíma í dag, með Robert kennara, á tveggjahreyfla vélinni. Fórum af stað rúmlega 9 í morgun og komum heim aftur kl. rúmlega 17. Fyrsti leggurinn var frá Chandler til Albuquerque og tók hann okkur tvo og hálfan klukkutíma. Þegar við vorum lentir og ég var að taxera vélinni út af flugbrautinni, drap hægri hreyfillinn á sér! Feginn að það gerðist á jörðinni! Okkur grunaði nú samt að það hafi gerst útaf því hve þunnt loftið er þarna, en flugvöllurinn er í rúmlega 4 þús. feta hæð. Ég þurfti því að aka flugvélinni í stæði á einum hreyfli. Það er dálítið öðruvísi en að vera með báða hreyflana í gangi því að flugvélin vill alltaf beygja í áttina að þeim hreyfli sem er ekki í gangi og svo að hún geri það ekki þá þarf maður að beygja á móti, og það ekkert smá! En þetta gekk vel. Við teygðum úr okkur og fylltum á skrímslið.

Verið að fylla á vélina í Deming. Umhverfið alveg meiriháttar þarna í kring. Flott fjöllin og svoleiðis! |
Annar leggurinn var frá Albuquerque til Deming. Á miðri leið er bær sem við flugum yfir. Svo sem ekki frásögu færandi, nema það að nafnið var Truth or Consequences! Skemmtilegt nafn það! Þaðan flugum við svo beint í átt að smábæ sem heitir Deming. Sá bær var svona dæmigerður svefnbær, ekkert að gerast. Umhverfið þar var samt mjög flott. Þar teygðum við aftur úr okkur en þessi leggur tók okkur tæplega tvo tíma og næsti og síðasti leggurinn áætlaður rúmlega tveir tímar. Við athuguðum olíuna og bensínið og komum okkur af stað aftur.

Sólsetrið í eyðimörkinni séð úr loftinu... |
Nú var klukkan langt gengin í fjögur. Vindurinn var farinn að aukast örlítið og við flognir inn í fjallendi sem þýddi það að ég varð að vinna fyrir því að halda flugvélinni í réttri hæð og á réttri stefnu. Það gekk nú bara vel, en það getur verið ágætlega þreytandi. Það var líka gott að komast í umhverfi sem maður kannaðist við, þá var auðveldara að átta sig á því hvar maður var og hætti maður að horfa eins mikið á kortið.
Það var farið að rökkva þegar við komum til baka og var flott að sjá sólsetrið í eyðimörkinni!
Þetta var sem sagt alveg hinn prýðilegasti dagur í dag.
Annars var einmitt Halloween á mánudaginn síðasta. Ég var alveg búinn að ákveða það að ég ætlaði ekki að svara ef það væri bankað hjá okkur Óla og öskrað "Trick or Treat!", við áttum nefnilega ekkert nammi til að gefa. Við sluppum hinsvegar blessunarlega við þetta allt saman. Ekki bankað einusinni hjá okkur. Samt alveg ótrúlega fyndið að sjá hvað Ameríkanar halda mikið upp á þetta. Fórum í Wal Mart og þar var starfsfólkið allt klætt upp í alskonar búininga!

Og ég hélt að ég væri í grímubúning í vinnunni!
En jæja, læt þetta nægja í bili. Hendi inn myndum úr ferðinni þegar ég er búinn að fara yfir þær...