Jájájá... maður er bara kominn heim fyrir löngu síðan! Bölvuð vitleysa...
Við Óli lögðum af stað frá Chandler eld snemma um morguninn eftir lítinn svefn, plönuðum að vera komnir á völlinn um 2 tímum fyrir flug. Sem betur fer lögðum við svona snemma af stað því það var ekkert grín að reyna að finna hvar við áttum að skila bílnum! En það hafðist að lokum...
Við tók langt, langt, langt ferðalag! Flugum fyrst frá Phoenix til Baltimore. Þar þurftum við að sækja töskurnar okkar og tékka okkur aftur inn í flugið til Íslands. Það gekk bara fínt en við fengum hinsvegar ekki sæti við neyðarútgang til að hafa gott pláss fyrir fæturnar...

Þar sem ég fékk sætið við gluggan á leiðinni frá Phoenix fékk Óli gluggasætið á leiðinni til Íslands og ég sat við ganginn. Sem betur fer var enginn á milli okkar á leiðinni þannig að maður gat breitt vel úr sér...
Þegar við lentum í Keflavík var hávaða rok, grenjandi rigning og skíta kuldi! Ísland gamla Ísland...

Þvílík tilbreyting frá síðustu mánuðum!
Pabbi sótti mig út á völl, hafði sofið pínu yfir sig, en það var í lagi því ég tók mér góðan tíma í Fríhöfninni. Keypti nú samt ekki mikið...

Skemmtilegast af öllu við heimkomuna var samt að sjá hana Perlu mína aftur! Ég var eiginlega búinn að gera ráð fyrir að hún væri horfin þegar ég kom heim þannig að það kom mér svona skemmtilega á óvart!
Síðan ég kom heim er lítið búið að gerast hjá mér... Ekkert heyrt frá Icelandair og geri ekki ráð fyrir því að heyra neitt jákvætt frá þeim úr þessu, en ég er búinn að senda inn umsókn til flugfélagsins Mýflugs fyrir norðan og svo fór ég líka með umsókn til Flugfélags Íslands þannig að ég vona bara það besta.
Annars bið ég bara að heilsa ykkur í bili...