Já, það er spurning. Maður hefur ekkert spennandi lengur til að blogga um! Alveg dottinn inn í sömu gömlu rútinuna. Alveg magnað hvað manni finnst maður ekkert hafa verið í fríi þegar maður kemur til baka. Greinilega ekki tekið mér nógu langt frí!

Annars er ég alltaf jafn duglegur í jólagjafainnkaupunum. Búinn að gera tvær tilraunir til þess að fara í bæinn og versla en ég hringsnýst bara alltaf þegar ég fer að kíkja í búðir. Spá í að kaupa bara frímerki handa öllum, þér líka!
Atvinnuleitin hefur ekki verið að ganga best. Hef enn ekkert heyrt frá Icelandair þó svo að þeir séu búnir að ganga frá öllum ráðningum hjá sér. Finnst þetta frekar skrýtin framkoma af þeirra hálfu. Ég hringdi svo í Mýflug í miðri síðustu viku til að athuga með gang mála þar. Ég hafði lesið í fréttablaði Félags íslenskra atvinnuflugmanna að Mýflug ætlaði að halda námskeið mánudaginn 12. des þannig að ég ætlaði að kanna þetta. Þar fékk ég þau svör að bréfin væru á leiðinni, m.ö.o. það var búið að hafa samband við alla þá sem átti að boða á námskeiðið.
Svo hef ég ekkert heyrt frá flugfélaginu Erni, né Flugfélagi Íslands, en þeir eru búnir að bóka flugherminn á mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku þannig að ég verð að heyra eitthvað á morgun eða hinn ef það á að gerast eitthvað hjá mér þar. En ég fékk e-mail frá Air Atlanta þess efnis að þeir væru ekki að ráða flugmenn þessa stundina, en ef ég vildi að þeir mundu geyma umsóknina mína næstu 6 mánuði ætti ég að fara á heimasíðu þeirra og fylla þar út umsókn. Þeir eru sem sagt eina flugfélagið sem er búið að svara mér um hvort ég fái vinnu hjá þeim eða ekki. Alveg magnað!
En það þýðir ekkert að gefast upp, ekki það að maður hafi verið búinn að sjá það fyrir sér að vera kominn með vinnu á þoturnar eftir áramót!

Ég er farinn að spá í því hvort maður eigi að fara að kíkja út aftur... fara að vinna þar?!
Huxi hux...